Einkaumboð Axus Decor og European Industrial Coatings
Málningarvinna Carls rekur heildsölu fyrir verktaka, málara og fyrirtæki. Við útvegum lakkefni, teip, yfirbreiðslur og rekstrarvörur fyrir málningarvinnu, og verktakar geta verslað við okkur á verktakakjörum.
Verktakar, málarar og fyrirtæki geta verslað við okkur á verktakakjörum. Hafðu samband og við förum yfir kjörin og það sem þú þarft fyrir verkefnin þín.
Einkaumboð á Íslandi
Málningarvinna Carls er með einkaumboð fyrir European Industrial Coatings á Íslandi og getur útvegað allt vöruúrval fyrirtækisins. Við bjóðum meðal annars lakkefni frá Renner, Remmers og Amonn Color ásamt Chromatique-bæsum fyrir fyrirtæki og fagfólk.
Hægt er að panta lökkin hjá okkur. Sumar vörur eru á lager og aðrar þarf að panta. Hafðu samband um efnisval, vöruframboð og afhendingartíma.
Við notum efnin sjálf á sprautuverkstæðinu og aðstoðum við val á efnum sem henta verkefninu.





Renner-lökk eru seld fyrirtækjum og fagfólki, ekki einstaklingum. Einstaklingar geta fengið hluti sprautaða á verkstæðinu okkar.

Einkaumboð Axus Decor á Íslandi
Málningarvinna Carls er með einkaumboð á Axus Decor á Íslandi. Við bjóðum teip, plöst, pappa og breiðslur í heildsölu fyrir fyrirtæki og fagfólk, með sérstaka áherslu á teip fyrir málningarvinnu.
Segðu okkur frá verkefnunum og við aðstoðum við val á teipi og yfirbreiðslum. Axus-vörurnar fást líka í almennu versluninni.

Í heildsölunni fást einnig rekstrarvörur eins og rúllur, penslar, límbönd og yfirbreiðslur. Vörur frá Flügger og Sérefni fást í versluninni á Ægisbraut 11, og við getum pantað það sem ekki er til.


Við bjóðum fyrirtækjum og fagaðilum upp á fjölbreytt úrval vara, meðal annars iðnaðarlökk, bæsefni, málningarteip, pensla, sandpappír, yfirbreiðslur og önnur efni og verkfæri fyrir faglega notkun.
Málningarvinna Carls er viðurkenndur söluaðili Renner á Íslandi og flytur inn iðnaðarlökk fyrir innréttinga- og húsgagnaiðnað. Við erum staðsett á Akranesi og seljum vörurnar til fyrirtækja og fagaðila á Íslandi.
Já, við bjóðum upp á lakkkerfi og tengdar vörur fyrir trésmiðjur, innréttingaframleiðendur og húsgagnasmiði. Við aðstoðum við val á vörum eftir undirlagi, notkun og kröfum hvers verkefnis.
Já, við aðstoðum fagaðila við að velja hentug lakkkerfi og önnur efni fyrir mismunandi verkefni. Við leggjum áherslu á faglega ráðgjöf og lausnir sem henta viðkomandi framleiðslu.
Já, við bjóðum fyrirtækjum og fagaðilum upp á viðskipti í heildsölu. Hafðu samband við okkur til að fá upplýsingar um vöruframboð, verð og viðskiptakjör.
Fyrirtæki geta haft samband við okkur til að fá upplýsingar um vörur, verð og pantanir. Við aðstoðum við að finna réttar vörur og skipuleggja kaup eftir þörfum hvers viðskiptavinar.
Hafðu samband um vöruframboð, verktakakjör og afhendingartíma. Sími 786 6060, opið virka daga 08:00–17:00.