Fyrirtæki, húsfélög og verktakar

Skrifleg tilboð, skýr samskipti og verkáætlun sem raskar starfsemi og daglegu lífi sem minnst. Á Akranesi, Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu.

Minni og stærri verkefni

Við tökum að okkur minni og stærri málningarverkefni fyrir fyrirtæki, stofnanir, húsfélög, fasteignafélög og verktaka.

Fyrirtæki og stofnanir

Við þjónustum fyrirtæki og stofnanir, hvort sem um er að ræða heilar byggingar, skrifstofur eða einstök rými. Verkefnin geta verið minni viðhaldsverk eða stærri framkvæmdir og við skipuleggjum vinnuna í samráði við ykkur, svo hún trufli reksturinn sem minnst.

Við sjáum líka um sprautulökkun, til dæmis á hurðum og innréttingum.

Húsfélög og fasteignafélög

Við sjáum um utanhússmálun, háþrýstiþvott og sílanböðun, ásamt málun á stigagöngum og sameignum.

Við skoðum ástand hússins og gerum skriflegt tilboð sem auðvelt er að leggja fyrir húsfund eða stjórn.

Verktakar

Við tökum að okkur útboðsverk, stór og smá, og önnur málningarverkefni sem tilheyra framkvæmdum, til dæmis málun nýbygginga.

Við vinnum eftir útboðsgögnum og verkáætlun og skipuleggjum málunina með öðrum verkþáttum á verkstað.

Götur og bílastæði

Vegmerkingar og bílastæðamerkingar fyrir fyrirtæki, húsfélög og sveitarfélög, þar á meðal merkingar á stæðum fyrir hreyfihamlaða.

Svona vinnum við stærri verk

1

Fyrirspurn

Við svörum fyrirspurninni, oft með spurningum eða ósk um að skoða aðstæður.

2

Skoðun

Við förum yfir hvað þarf að gera og hvað verkkaupi vill láta gera.

3

Tilboð

Við setjum upp tilboð og sendum það til verkkaupa. Í útboðsverkum gerum við tilboð eftir útboðsgögnum, oft fyrir verktaka.

4

Tími og verk

Þegar tilboðið er samþykkt finnum við tíma með verkkaupa, ef hann hefur ekki þegar verið ákveðinn, og vinnum verkið.

Já, við tökum að okkur málun fjölbýlishúsa, stigaganga, sameigna og annarra sameiginlegra rýma. Við sinnum einnig utanhússmálun og viðhaldsverkefnum fyrir húsfélög.

Við sinnum fjölbreyttum málningarverkefnum fyrir fyrirtæki, meðal annars innanhúss- og utanhússmálun, viðhaldsmálun, nýbyggingum og vegmerkingum. Verkefnin eru skipulögð með hliðsjón af starfsemi og þörfum hvers viðskiptavinar.

Já, húsfélög geta óskað eftir tilboði í málun fjölbýlishúsa, hvort sem um er að ræða utanhússmálun, stigaganga eða önnur sameiginleg rými. Hægt er að leggja tilboðið fyrir á húsfélagsfundi. Umfang verkefnisins er metið út frá ástandi eignarinnar og þeirri vinnu sem þarf að framkvæma.

Já, við tökum að okkur málningarvinnu í nýbyggingum og öðrum framkvæmdum í samstarfi við byggingarverktaka. Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, gott skipulag og skýr samskipti.

Já, við tökum að okkur vegmerkingar, þar á meðal merkingar bílastæða og stæða fyrir hreyfihamlaða. Þjónustan hentar meðal annars fyrirtækjum, húsfélögum og öðrum fasteignaeigendum.

Hægt er að senda okkur tilboðsfyrirspurn í gegnum vefsíðuna eða hafa beint samband. Gott er að láta fylgja upplýsingar um fasteignina, umfang verkefnisins og áætlaðan framkvæmdatíma.

Ertu með stærra verkefni á döfinni?

Segðu okkur frá því og við finnum tíma til að skoða aðstæður.