Málum hús, sprautum innréttingar
og seljum málningu.
Fimm kynslóðir málara í yfir 100 ár.
Málningarverslun
á Akranesi
Málning, verkfæri og ráðgjöf frá fólki sem notar vörurnar sjálft.
- Ægisbraut 11, 300 Akranes
- Opið virka daga 08:00–17:00
















Næsta verkefni gæti verið þitt.
Umsagnir á Google
★★★★★
„Hef fengið mörg fyrirtæki og iðnaðarmenn til að vinna fyrir mig í gegnum árin og Málningarvinna Carls deilir efsta sætinu með fáum öðrum fyrir EINSTAKLEGA faglega, ábyrga og góða þjónustu. Takk fyrir okkur !“
Ingimundur Þór Þorsteinsson
★★★★★
„Fyrirmyndar þjónusta og fagmannleg vinnubrögð. Kom með illa farnar framhliðar af innréttingu sem varð sem ný.“
Guðmann Magnússon
★★★★★
„Málningavinna Carls er frábær, topp þjónusta, Miklir fagmenn og mjög þrifalegir. Ég mun nýta mér þjónustu þeirra aftur, mæli með“
Andrea þórunn Björnsdóttir
Um okkur
Heiðarleg, traust þjónusta
Málningarvinna Carls byggir á málarahefð sem nær yfir 100 ár og fimm kynslóðir málara. Fyrirtækið var stofnað árið 1998 og grunnurinn er sá sami og í upphafi: vönduð vinnubrögð og persónuleg þjónusta.

Carl Jóhann Gränz
Eigandi og framkvæmdastjóri. Löggiltur málarameistari og byggingariðnfræðingur.
Algengar spurningar
Hvaða þjónustu bjóðið þið upp á?
Við bjóðum upp á alhliða málningarþjónustu, sprautun innréttinga, hurða og húsgagna ásamt sölu á málningu og málningarvörum. Við þjónustum einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög og verktaka.
Á hvaða svæðum takið þið að ykkur verkefni?
Málningarvinna Carls er staðsett á Akranesi en tekur einnig að sér verkefni á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi og nærliggjandi svæðum. Tökum líka að okkur verkefni í öðrum landshlutum eftir samkomulagi.
Hvernig fæ ég tilboð í málun eða sprautun?
Þú getur sent okkur fyrirspurn í gegnum tilboðsformið á vefsíðunni. Gott er að láta fylgja stutta lýsingu á verkefninu, staðsetningu og myndir ef þær eru til staðar.
Takið þið að ykkur verkefni fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki?
Já, við sinnum verkefnum fyrir einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög, verktaka og aðra fagaðila. Verkefnin eru fjölbreytt, allt frá endurmálun heimila til stærri framkvæmda og sprautunar fyrir einstaklinga og innréttingaframleiðendur.
Hvar eruð þið staðsett og hver er opnunartíminn?
Við erum til húsa að Ægisbraut 11 á Akranesi. Málningarverslunin er opin virka daga frá kl. 08:00 til 17:00.


