Um Málningarvinnu Carls

Málningarþjónusta, sprautuverkstæði og málningarverslun á Ægisbraut 11 á Akranesi.

Málningarvinna Carls – yfir 100 ár, fimm kynslóðir málara

Sagan okkar

Málaraiðnin hefur gengið frá föður til sonar í fimm kynslóðir. Carl Jóhann Gränz, eigandi Málningarvinnu Carls, er löggiltur málarameistari og byggingariðnfræðingur, og fjölskyldan tekur virkan þátt í daglegum rekstri.

Grunnurinn er sá sami og í upphafi: vönduð vinnubrögð og persónuleg þjónusta.

Carl Jóhann Gränz, 5 ára, með pensil í hendi, júlí 1984

Carl Jóhann, fimm ára, með pensil í hendi sumarið 1984.

Kynslóðirnar fimm

1. kynslóð

Carl Jóhann Gränz

Málarameistari

Langafi núverandi eiganda.

2. kynslóð

Áki Guðni Gränz

Málarameistari

Afi núverandi eiganda.

3. kynslóð

Carl Bergur Gränz

Málarameistari

Faðir eiganda og annar stofnenda Málningarvinnu Carls.

4. kynslóð

Carl Jóhann Gränz

Málarameistari

Eigandi og framkvæmdastjóri Málningarvinnu Carls.

5. kynslóð

Guðjón Ívar Gränz

Málarasveinn

Sonur eiganda.

Saga fyrirtækisins

1998

Málningarvinna Carls stofnuð

Feðgarnir Carl Bergur Gränz og Carl Jóhann Gränz stofnuðu Málningarvinnu Carls.

Fyrsta merki Málningarvinnu Carls

2002

Agnúi ehf.

Reksturinn var færður í einkahlutafélagið Agnúa ehf.

2016

Carl Jóhann tekur við

Eftir fráfall föður síns tók Carl Jóhann alfarið við rekstrinum og hóf að reka fyrirtækið á Akranesi.

Í dag

Málun, sprautun og verslun

Fjölskyldan rekur málningarþjónustu, sprautuverkstæði og málningarverslun á Ægisbraut 11 á Akranesi.

Gildin okkar

Heiðarleiki

Við stöndum við það sem við segjum.

Traust

Skýr samskipti og fagleg ráðgjöf í hverju verki.

Þjónusta

Raunhæfar lausnir í verkum stórum sem smáum.

Hvar við störfum

Við erum með aðsetur á Ægisbraut 11 á Akranesi og vinnum á Akranesi, á Vesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Verkefni á öðrum svæðum tökum við að okkur eftir samkomulagi.

Kort af Íslandi: Málningarvinna Carls starfar á Akranesi, á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarbyggð og Dalabyggð

Ertu með verkefni sem þú vilt að við leysum fyrir þig?

Segðu okkur frá verkefninu og við aðstoðum þig við næstu skref.