Fyrir innréttingaframleiðendur, húsgagnasmiði og verktaka á höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi.
Við tökum að okkur sprautulökkun á nýsmíði á verkstæðinu okkar á Akranesi, fyrir fagaðila sem vilja útvista sprautuninni.
Sprautulökkun á innréttingum, framhliðum og öðrum hlutum í framleiðslu.
Sprautulökkun á húsgögnum og sérsmíðuðum hlutum.
Hurðir, listar og aðrir hlutir í byggingarverkefnum.

Við vinnum sjálf með lakkefni á sprautuverkstæðinu og þekkjum því vel hvað skiptir máli í framleiðslu: jöfn áferð, ending og hagkvæm vinnsla.
Við erum með einkaumboð fyrir European Industrial Coatings á Íslandi og getum útvegað allt vöruúrval fyrirtækisins, þar á meðal Renner-lökk sem nota má í Svansvottuðum byggingum. Við aðstoðum við val á viðeigandi vörum.
Þú sendir lýsingu, magn og óskir um lit.
Við gerum tilboð út frá verkefninu.
Hlutirnir eru undirbúnir og lakkaðir á verkstæðinu.
Við förum yfir fyrirkomulag afhendingar með þér.
Við vinnum með vönduð lökk og yfirborðsefni frá Renner, Remmers og Amonn.



Við vinnum með vönduð lökk, meðal annars frá Renner, Remmers og Amonn. Efnisval fer eftir verkefninu.
Já, verkstæðið er á Akranesi og við tökum að okkur verkefni af höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi. Hafðu samband og við förum yfir fyrirkomulag og flutning. Verkefni á öðrum svæðum tökum við að okkur eftir samkomulagi.
Sendu okkur lýsingu, magn og óskir um lit og við gerum tilboð út frá verkefninu.
Já, við flytjum inn og seljum fagleg lakkefni, meðal annars lakkkerfi frá Renner, til fyrirtækja og fagfólks.
Já. Við notum efnin sjálf á sprautuverkstæðinu og ráðleggjum um efnisval, vinnslu og endingu út frá verkefninu.
Segðu okkur frá verkefninu og við aðstoðum þig við næstu skref.