Bílastæði og aðrar merkingar fyrir fyrirtæki, húsfélög, stofnanir og einstaklinga á Akranesi, Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu.
Sendu okkur lýsingu á svæðinu og við gerum tilboð út frá verkinu.
Skýrar merkingar gera bílastæði öruggari og auðvelda fólki að leggja rétt. Við merkjum bílastæði fyrir fyrirtæki, húsfélög, stofnanir og einstaklinga, bæði nýjar merkingar og endurmerkingar á eldri svæðum.
Við getum unnið eftir teikningu eða lýsingu frá þér og förum yfir svæðið áður en verkið hefst. Ef merkingar eru orðnar óskýrar metum við hvað þarf að gera.
Við notum ETH Graco-vegmerkingarvél.
Stæði fyrir hreyfihamlaða þurfa að vera skýrt merkt svo þau nýtist þeim sem á þeim þurfa að halda. Við merkjum slík stæði fyrir fyrirtæki og húsfélög og vinnum þau oft samhliða öðrum merkingum á svæðinu.
Sendu okkur upplýsingar um staðsetningu og fjölda stæða og við förum yfir verkið með þér.
Við merkjum líka akreinar, gangbrautir og önnur umferðarsvæði. Verkefnin eru misjöfn og fara eftir því hvað svæðið þarf, hvort sem um er að ræða einstakar merkingar eða heilt svæði.
Regnbogagatan á Akranesi er dæmi um verkefni af þessu tagi.
Við merkjum bílastæði, akreinar, gangbrautir og önnur aksturs- og umferðarsvæði.
Við merkjum fyrir fyrirtæki, húsfélög, stofnanir og einstaklinga.
Sendu okkur lýsingu á verkinu, helst með myndum, eða hringdu í 786 6060. Við gerum tilboð út frá verkinu.
Já, við tökum að okkur bæði nýjar merkingar og endurmerkingar.
Já, stæði fyrir hreyfihamlaða er hægt að vinna samhliða öðrum merkingum á svæðinu.
Sendu okkur staðsetningu, mynd eða teikningu og umfang, og við gerum tilboð út frá verkinu.