Renner Wood Coatings og umhverfið

Við gerum okkur grein fyrir mikilvægi þess að nota hágæða efni. Þess vegna seljum við Renner efni. Renner málning er ein af þeim mest tæknilega þróuðustu og nýstárlegustu á markaðnum í dag.
Renner Wood Coatings er orðinn einn af stærstu framleiðendum viðarlausna í allri Evrópu. Polyurethan vörur þeirra gefa framúrskarandi áferð miðað samkeppnisaðila, bjóða upp á einn mesta skýrleika, styrk og yfirhöfuð dregur fram það besta í viðnum. Ef þú vilt ná þér í Renner vörur þá erum við hér hjá Málningarvinnu Carls þinn aðili og litum fyrir þig. Þessar einstöku vörur hafa skapað sér sterkt nafn á markaðnum og það ekki að ástæðulausu.
En hvað gerir Renner málningu svona góða? Þeir bjóða upp á vörur sem þorna mjög hratt, meiri fyllingu og langvarandi endingu.
Ein af megináherslum Renner er að búa til vöru sem virkar ekki bara vel heldur sé líka betri fyrir umhverfið. Það gera þeir svo þú getir unnið áhyggjulaus vitandi að þú sért að gefa þínum viðskiptavinum eitt það besta þarna úti
Hvernig fara þeir nú að þessu? Þeir helguðu heilu deildum fyrirtækisins í verkefnið, fókusuðu á það að skapa grænni og öruggari vörur fyrir alla. Rannsóknarstofa Renner hefur einblínt á þetta og heldur áfram að færa mörkin til að veita þér bestu mögulegu upplifunina.
Þeir hafa ákveðið formeldahýð fría nálgun í að búa til sínar vörur. Það var almennt notað vegna mygluvarnar eiginleika sinna, það er þó skaðlegt umhverfinu. Til viðbótar við þetta nota verksmiðjur þeirra 100% græna orku sem þýðir að þeir hafa stórlega dregið úr kolefnislosun sinni. Orkan kemur frá blöndu af uppsprettum frá vatnsafli og sólarorku og öllu þar á milli.
Renner er klárlega viðmiðið þegar kemur að vörum fyrir innréttingaframleiðendur. Einnig skrefi framar að okkar mati í eldvarnarlökkum fyrir viðarfleti, húsgögn og fleira í öllum litum.
Hægt er að sækja bækling með upplýsingum um vörur frá Renner
