Birgjar

Renner Italia

Við gerum okkur grein fyrir mikilvægi þess að nota hágæða efni. Þess vegna seljum við Renner efni. Renner málning er ein af þeim mest tæknilega þróuðustu og nýstárlegustu á markaðnum í dag.
Renner Wood Coatings er orðinn einn af stærstu framleiðendum viðarlausna í allri Evrópu. Polyurethan vörur þeirra gefa framúrskarandi áferð miðað samkeppnisaðila, bjóða upp á einn mesta skýrleika, styrk og yfirhöfuð dregur fram það besta í viðnum. Ef þú vilt ná þér í Renner vörur þá erum við hér hjá Málningarvinnu Carls þinn aðili og litum fyrir þig. Þessar einstöku vörur hafa skapað sér sterkt nafn á markaðnum og það ekki að ástæðulausu.
En hvað gerir Renner málningu svona góða? Þeir bjóða upp á vörur sem þorna mjög hratt, meiri fyllingu og langvarandi endingu.

Renner Wood Coatings og umhverfið

Ein af megináherslum Renner er að búa til vöru sem virkar ekki bara vel heldur sé líka betri fyrir umhverfið. Það gera þeir svo þú getir unnið áhyggjulaus vitandi að þú sért að gefa þínum viðskiptavinum eitt það besta þarna úti
Hvernig fara þeir nú að þessu? Þeir helguðu heilu deildum fyrirtækisins í verkefnið, fókusuðu á það að skapa grænni og öruggari vörur fyrir alla. Rannsóknarstofa Renner hefur einblínt á þetta og heldur áfram að færa mörkin til að veita þér bestu mögulegu upplifunina.
Þeir hafa ákveðið formeldahýð fría nálgun í að búa til sínar vörur. Það var almennt notað vegna mygluvarnar eiginleika sinna, það er þó skaðlegt umhverfinu. Til viðbótar við þetta nota verksmiðjur þeirra 100% græna orku sem þýðir að þeir hafa stórlega dregið úr kolefnislosun sinni. Orkan kemur frá blöndu af uppsprettum frá vatnsafli og sólarorku og öllu þar á milli.
Renner er klárlega viðmiðið þegar kemur að vörum fyrir innréttingaframleiðendur. Einnig skrefi framar að okkar mati í eldvarnarlökkum fyrir viðarfleti, húsgögn og fleira í öllum litum.

Amonn Color

Með rætur sem teygja sig yfir 200 ár aftur í tímann, Amonn er vel rótgróið vörumerki. Er leiðandi í vöruþróun, Stoltir af því að koma með hágæða vörur á markað og uppfylla þínar þarfir.
Amonn hefur sannað það vel við að framleiða einhverja þá hæstu gæða Eldvarnarmálning og lakka í heiminum. Með yfir 40 ára reynslu af framleiðslu þeirra og yfir 100 ár í framleiðslu almennt.
Þeir leggja metnað sinn í rannsóknir og þróun til að færa þér, notandanum, málningu í allra hæðstu gæðum mögulega. Í gegnum árin hafa þeir haft tækifæri á stöðugum framförum og framleiða nokkur af bestu lökkum í greininni.
Við erum gríðarlega ánægðir að geta boðið upp á vörur frá Amonn Color á Íslandi. Áhersla okkar verður á Eldvarnarmálningu og lökk. En þeir bjóða til dæmis upp á þá tærustu glæru sem völ er á fyrir viðarfleti.
https://www.amonncolor.com/en/

Remmers

Sjálfstætt og í fjölskyldueigu síðan 1949. Remmers framleiða sérhæfð lökk og viðarefni. Þeir leggja metnað sinn og stolt í það að geta stöðugt gert nýjungar og mætt kröfum viðskiptavina sinna með nýjum og nýstárlegum lausnum.
Síðan það var stofnað árið 1949 hefur það vaxið úr eins manns fyrirtæki í alþjóðlega viðurkennt vörumerki. Fyrirtækið var stofnað af Bernhard Remmers og er enn í fjölskyldueigu. Þeir sérhæfa sig í að búa til viðarmálningu og lökk sem og aðrar efna byggingavörur.
Þeir geta boðið þér mikið úrval af vörum þar sem þú getur verið viss um hið fullkomna val fyrir hvaða verkefni sem þú hefur í huga. Efnin þeirra eru í fremstu röð í greininni. Leyfðu okkur að hjálpa þér að finna ákjósanlega vöru fyrir þig.
Við munum leggja sérstaka áherslu á lökk fyrir glugga og hurða framleiðendur ásamt ýmsum byggingavörum ásamt parketlökkum.

European Industrial Coatings

Mælum einnig með að kynna sér European Industrial Coatings samstarfsaðila okkar á Írlandi en við getum flutt inn flestallt sem þeir hafa í boði.
https://eicoatings.com/

Birgjarnir okkar og samstarfsaðilar

Driving technology for leading brands
Karfa

Engar vörur í körfu.