
Um okkur
Carl Jóhann Granz
Málningarvinna Carls hóf störf árið 1998 af þeim feðgum Carli Bergi Gränz og Carli Jóhann Gränz, árið 2002 var reksturinn færður yfir í Einkahlutafélag og hefur verið þar síðan. Árið 2016 við fráfall föður tók Carl Jóhann alfarið við rekstrinum og hefur rekið það síðan frá Akranesi við góðan orðstír.
Við byggjum á gömlum grunni en bæði afi og langafi Carls voru málarameistarar, þeir Áki Guðni Gränz og alnafni Carl Jóhann Gränz. Sonur Carls Jóhanns hefur einnig hafið störf við málun og stefnir á að klára það nám.
Markmiðin eru skýr, byggja upp trausta og heiðarlega þjónustu við fólk og fyrirtæki. Í dag starfa hjá fyrirtækinu 4-7 menn eftir árstíma og hefur það verið að styrkjast jafnt og þétt. Við erum með okkar eigin verkstæði á Ægisbraut 11 Akranesi þar sem við erum einnig með sprautuverkstæði og málningarverslun þar sem áhersla er á vatnsleysanleg innréttingalökk, Eldvarnarlökk og sprautulökk fyrir glugga og hurðaverksmiðjur. Við erum í nánu samstarfi við European Industrial Coatings á Írlandi og seljum við hér á landi efni frá Renner Italia, Amonn Color og Remmers en hver um sig eru virkilega öflugir framleiðendur með mikla styrkleika hver á sínu sviði.
Grunnur á góðum stoðum
Upphaf
- Sumarið 1998Málningarvinna Carls stofnað af feðgunum Carli Bergi Granz og Carli Jóhanni Granz
- 2002Sameiginlegur rekstur feðganna færður í einkahlutafélag
- 2016Carl Bergur fellur frá og Carl Jóhann tekur alfarið yfir reksturinn
- 2023Gerum samstarfssamning við European Industrial Coatings til að geta boðið uppá hágæða efni og vörur frá Renner Italia Ammonn Color Remmers

Faq
Helstu spurningar sem þú gætir viljað svör við
Við sinnum allri almennri málningarþjónustu, háþrýstiþvotti og þá bæði létthreinsun og svo að hreinsla allt af húsum. Innimálun sem og útimálun auk þess sem við erum með fullbúið sprautuverkstæði fyrir innréttar og húsgögn svo fátt eitt sé nefnt.


Hvað er löng bið?
Allt er breytingum háð og í útimálun veðri. Best er að hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst eða síma og við finnum tíma eins fljótt sem auðið er.
Við leggjum metnað í að standa líka við tímaáætlanir sem við setjum upp.
Við leggjum metnað í að standa líka við tímaáætlanir sem við setjum upp.
Er hægt að koma á staðinn og versla vörur
Já, en við liggjum ekki með stóran lager svo að stærri pantanir geta tekið smá tíma. En við getum blandað fyrir þig flest alla liti á staðnum.
Innréttingasprautun
Þú getur komið með hlutina sem þarf að sprauta til okkar eða samið við okkur um að aðstoða við flutning til okkar og skilum á hlutnum til þín aftur
